Flóttamenn efstir á blaði 22. apríl 2005 00:01
Flóttamenn og hælisleitendur eru efst á blaði í kosningabaráttunni í Bretlandi. Íhaldsmenn leggja ofuráherslu á að fækka innflytjendum og Blair forsætisráðherra tekur orðið í sama streng. Tony Blair kynnti útlendingastefnu sína í morgun. Innflytjendur og flóttamenn eru efst á blaði í kosningabaráttunni og óttast margir að með umræðunni sé kynnt undir kynþáttafordómum. Íhaldsflokkurinn hefur lagt mikla áherslu á þennan málaflokk og segir Michael Howard, leiðtogi flokksins, að straumur fólks til Bretlands sé kominn úr skorðum og að grípa verði í taumana. Howard, sem er sonur innflytjenda, vill setja kvóta á fjölda þeirra, fjölga landamæravörðum og koma á laggirnar miðstöðvum erlendis þar sem unnið er úr umsóknum innflytjenda áður en þeim er hleypt til landsins. Raunar þykir sumum stuðningsmönnum Íhaldsflokksins nóg um málatilbúnaðinn og óttast að hann hreki hugsanlega kjósendur frá flokknum. Engu að síður eru þessi málefni orðin svo áberandi að Blair sá í morgun ástæðu til að bregðast við. Hann vill ekki taka jafn hart á og Íhaldsmenn heldur taka upp einskonar punktakerfi sem hyglir fyrst og fremst vel menntuðu fólki sem nýtist á vinnumarkaði. Raunverulegir flóttamenn yrðu á móti hugsanlega sendir heim eftir fimm ára dvöl á Bretlandi, sé ástandið í heimalandinu talið betra. Bretar taka á móti fleiri innflytjendum og flóttamönnum en nokkuð annað Evrópuríki og gert er ráð fyrir því að rekja megi fólksfjölgun þar á næstu árum fyrst og fremst til innflytjenda.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Innlent Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Innlent Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Innlent Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Innlent Skipti öllu máli að telja drykkina Innlent „Þingflokkur Pírata braut á mér“ Innlent Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent Holan alls ekki eina slysagildran Innlent Spurð hvort hún ætli sér ekkert meira en kennarastarf Innlent Fleiri fréttir „Sölumaður dauðans“ aftur í vopnasölu Úr óveðri í kröftugasta fellibyl ársins á sólarhring Segjast hafa ráðist á rússneskt ríkisútvarp á afmælisdegi Pútín Deila Nóbelnum fyrir uppgötvun á miRNA Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Eitt ár frá upphafi stríðsins á Gasa Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Lýsa nóttinni sem skelfilegri Minnkandi virðing fyrir heilbrigðisstarfsfólki á Gasa Ung kona látin eftir skotárás í Ísrael Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana „Ein versta nóttin“ í Beirút frá upphafi átaka Sneri aftur á vettvang banatilræðisins Engum verði vísað út við myndbirtingu Minnst sextán látnir í aurskriðum í Bosníu og Hersegóvínu Einn af leiðtogum Hamas lést í loftárás á Líbanon Minnst sjötíu í valnum eftir árás glæpamanna Versnandi ástand í Pokrovsk Trump sagði Pence að hann yrði fyrirlitinn og talinn heimskur Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Obama leggur land undir fót fyrir Harris í næstu viku Sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Nichols Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Sjá meira