Innlent

Þrjú fíkniefnamál á sólarhring

Þrjú fíkniefnamál komu upp á Suðurnesjum frá því í fyrrakvöld og þar til í gærkvöld. Hald var lagt á amfetamín í öllum tilvikum en önnur efni fundust ekki. Fimm menn koma við sögu og voru tveir þeir síðustu handteknir í gærkvöldi á hálf ljóslausum bíl, beygluðum að framan og aftan og hljóðkútslausum. Ökumaðurinn er auk þess grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna og farþeginn var eftirlýstur af lögreglu fyrir afbrot annars staðar á landinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×