Innlent

Ungt fólk með efni á Suðurnesjum

Tvö fíkniefnamál komu upp í umdæmi lögreglunnar í Keflavík í fyrrinótt. Þrír menn yfir tvítugu voru teknir með minniháttar magn af hassi við Narðvík. Þeir voru í bíl sem lögreglan stöðvaði. Lögreglan stöðvaði einnig för tveggja manna á þrítugsaldri á Grindavíkurvegi. Í ljós kom að þeir voru með nokkur grömm af amfetamíni. Lögreglan telur fíkniefnin hafa verið til einkaneyslu og hefur sleppt mönnunum. Þeir eiga von á sektum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×