Innlent

Öðrum manna úr skotárás sleppt

Annar mannanna sem skaut á sautján ára dreng á Akureyri um síðustu helgi hefur játað árásina og gefið greinargóða lýsingu á atburðarrásinni. Honum var sleppt í gær. Lögreglumenn á almennu deild lögreglunnar á Akureyri segjast ekki hafa heimild til að gefa upp hvort hinum manninum hafi verið sleppt úr gæsluvarðhaldi. Árásin var gerð á laugardag þegar mennirnir óku með drenginn út fyrir Akureyri og skipuðu honum út úr bílnum, skutu þá á hann sex skotum úr loftbyssu, sögðu honum að afklæða sig og skutu aftur á hann sex skotum að talið er. Mennirnir tóku drenginn aftur upp í bílinn og óku honum aftur til Akureyrar. Tvær byssukúlur voru fjarlægðar úr drengnum með skurðaðgerð. Talið er að málið tengist fíkniefnaviðskiptum á Akureyri. Presturinn á Akureyri segir að fólk í bænum sé slegið yfir þessum atburði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×