Innlent

Ólæti í miðbæ Hafnarfjarðar

Annasamt var hjá lögreglunni í Hafnarfirði í nótt og fengu tveir að gista í fangageymslum hennar vegna mikillar ölvunar og láta í miðbænum. Skýrsla verður tekin af þeim nú í morgunsárið þegar mesta víman er runnin af þeim. Í Keflavík komu upp tvö minni háttar fíkniefnamál í nótt þar sem lítilræði af hassi og amfetamíni fannst í tveimur bílum sem lögreglumenn stöðvuðu. Annars var tiltölulega rólegt hjá lögreglunni um land allt, einnig í Reykjavík þrátt fyrir að mannfjöldi hafi verið mikill í miðbænum en samkvæmt lögreglunni fór allt vel fram. Ölvun var þó talsverð en lögreglan þurfti þrátt fyrir það að hafa lítil sem engin afskipti af fólki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×