Innlent

Erill hjá lögreglunni á Selfossi

Mikill erill var hjá lögreglunni á Selfossi í nótt. Annars vegar þurfti lögreglan að stöðva slagsmál milli tveggja manna við pylsuvagninn þar í bæ um klukkan fjögur í nótt og aftur stuttu síðar þegar önnur slagsmál brutust út við Kaffibarinn en greiðlega gekk að ganga frá málum og slasaðist enginn í átökunum. Þá var einn tekinn fyrir ölvunarakstur á Suðurlandsvegi við Hveragerði um klukkan hálffimm í nótt og fékk hann að gista fangageymslur lögreglunnar. Þá voru alls 13 manns stöðvaðir fyrir of hraðan akstur en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var enginn þeirra á ofsahraða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×