Innlent

Árekstur í gjánni í Kópavogi

Lögregla, sjúkralið og slökkvilið landsins höfðu í ýmis horn að líta í gær. Um níuleytið í gærkvöld var ekið aftan á kyrrstæðan bíl í gjánni í Kópavogi. Tækjabíll og sjúkrabílar voru kallaðir á vettvang og fluttu fjóra á slysadeild. Meiðsli þeirra voru minniháttar. Í gærkvöld kom upp eldur í húsi við Álfholt í Hafnarfirði. Húsráðendur réðu niðurlögum hans áður en slökkviliðið mætti á staðinn en hann kviknaði út frá eldavél. Bíll valt við Hoftún á Snæfellsnesvegi í gærdag og meiddust hjón sem voru í bílnum lítillega.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×