Innlent

Ránið í 10-11 upplýst

Lögreglan í Kópavogi hefur upplýst ránið sem tveir menn frömdu í í versluninni 10-11 við Engihjalla fyrir viku. Ræningjarnir, sem eru 19 og 22 ára, hótuðu afgreiðslustúlku þar að stinga hana á hol með skrúfjárni ef hún afhenti þeim ekki allt lausafé, sem hún gerði. Það var árvökult starfsfólk í 11-11 verslun annars staðar í bænum sem kom lögreglu á sporið en skömu fyrir ránið voru mennirnir þar og þóttu grunsamlegir. Þar náðust myndir af þeim í eftirlitsmyndavél sem leiddi til handtökunnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×