Innlent

Skemmdi tvo bíla lögreglu

Tveir lögreglumenn voru fluttir á slysadeild í fyrrinótt eftir að hafa lent í eltingarleik við ölvaðan ökumann sem ók um á ofsahraða. Tókst loks að stöðva för hans við Rauðavatn ekki fyrr en brotamaðurinn hafði ítrekað ekið fram og aftur á þá tvo lögreglubíla sem króað höfðu hann af. Var maðurinn handtekinn eftir ofsaakstur um höfuðborgina að sögn lögreglu í fyrrakvöld og látin laus eftir skýrslutöku en ekki leið á löngu áður en sami maður sást aftur á fleygiferð undir stýri á Reykjanesbrautinni og hófst þá eltingarleikur á ný. Lauk honum vð Rauðavatn þar sem náðist að loka ökumanninn af. Lögreglumennirnir reyndust ekki alvarlega slasaðir og fengu að fara heim að skoðun lokinni en tveir bíla lögreglu eru talsvert skemmdir eftir atvikið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×