Innlent

Ofbeldismanna leitað

Lögreglan í Reykjavík leitar enn þriggja til fjögurra manna sem börðu tvo menn til óbóta í miðborg Reykjavíkur í fyrrinótt. Árásirnar virðast báðar hafa verið tilefnislausar og þekkja fórnarlömbin ekkert til árásarmannanna. Bæði fórnarlömbin voru flutt á slysadeild og að sögn sjónarvotta má heita tilviljun að þau sluppu lifandi, miðað við atgang árásarmannanna. Hvorugur þolandinn hefur enn kært athæfið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×