Innlent

Fjórar líkamsárásir á einni nóttu

Óvenju mikilll erill var hjá lögreglunni í Reykjavík aðfaranótt sunnudags. Dyravörður var sleginn við Kringlukrána. Þá voru slagsmál við Broadway og var einn fluttur á slysadeild í kjölfarið. Þá var einn fluttur á slysadeild eftir árás tveggja eða þriggja manna á Hverfisgötunni en árásarmennirnir voru ófundnir. Þá fannst maður meðvitundarlítill í Austurstræti eftir árás og var hann fluttur á slysadeild. Árásarmennirnir eru einnig ófundnir. Þá ætlaði lögreglan að stöðva bíl ungs manns á Kringlumýrabrautinni en hann sinnti ekki beiðni lögreglunnar. Hófst þá eftirför vestur eftir Laugavegi og lauk henni á Miðtúni þar sem lögreglunni tókst loks að stöðva manninn. Hann reyndist vera réttindalaus. Einir fimm gistu fangaklefa lögreglunnar um nóttina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×