Innlent

Í 10 daga gæsluvarðhald

Héraðsdómur Norðurlands úrskurðaði fyrir stundu tvo menn í gæsluvarðhald í allt að tíu daga og einn í allt að þrjá daga, en mennirnir voru handteknir í fyrrakvöld með 350 grömm af hassi í fórum sínum við komuna til Akureyrar frá Reykjavík. Smásöluandvirði hassins gæti numið allt að 900 þúsundum. Tveir mannanna hafa áður gerst brotlegir við lög, meðal annars fyrir fíkniefnabrot, líkamsárásir og hótanir. Fyrr í vikunni handtók Akureyrarlögreglan þrjá aðra menn grunaða um fíkniefnamisferli, en talið er að þeir hafi kastað efnunum út úr bíl sínum þegar þeir óku á ofsahraða til að reyna að stinga lögregluna af.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×