Innlent

Með 300 gr. af hassi á leið norður

Þrír menn 19 til 25 ára voru handteknir við Blönduós með 300 grömm af hassi. Þeir gista fangageymslur og hefur lögreglan óskað eftir því að þeir verði settir í gæsluvarðhald. Daníel Snorrason, lögreglufulltrúi á Akureyri, segir eldri mennina tvo hafa komið við sögu lögreglunnar áður vegna fíkniefnamála, líkamsárása, hótana og fleiri afbrota. Hassmagnið er eitt það mesta sem lögreglan á Akureyri, í samvinnu við lögregluna á Blönduósi, hefur lagt hald á. Talið er að söluverðmæti efnanna sé á milli 800 til 900 þúsund krónur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×