Innlent

Þaulskipulagt tyggjósjálfsalarán

Harla óvenjulegt, en að því er virðist þaulskipulagt rán, var framið í anddyri verslunar í Njarðvík um kvöldmatarleytið í gærkvöldi þegar tveir ungir menn undu sér þar inn, slitu fullan tyggjósjálfsala af standinum og hlupu með hann út. Þar hentu þeir sjálfsalanum í skottið á bíl sem beið í gangi og brenndi þegar af stað en mennirnir hlupu á bak við verslunina og starfsmenn á eftir. En þá bar bílinn aftur að og stukku þeir inn í hann í skyndingu og hurfu á braut á reykspólandi bílnum með fenginn í skottinu. Lögreglu grunar hverjir voru þarna að verki og verður haft uppi á þeim í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×