Innlent

Hótaði að stinga stúlkuna á hol

Lögreglan í Kópavogi leitar enn tveggja manna, líklega um tvítugt, sem rændu peningum í verslun við Engihjalla síðdegis í gær. Annar þeirra rak skrúfjárn í maga afgreiðslustúlku og hótaði að stinga hana á hol ef hún afhenti honum ekki allt reiðufé, sem hún gerði. Það voru ekki nema 20 til 30 þúsund krónur en að svo komnu hurfu mennirnir á braut. Þeir höfðu hulið andlit sín og hefur lögregla harla litlar vísbendingar til að vinna eftir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×