Innlent

Þjófar hlaupnir uppi

Lögreglumenn úr Reykjavík hlupu uppi tvo innbrotsþjófa sem höfðu brotist inn í tölvufyrirtæki í Mörkinni um klukkan fjögur í nótt. Lögreglu bárust fregnir af innbrotinu og hélt þegar á vettvang. Tóku þjófarnir þá til fótanna en komust ekki í bíl sem þeir voru á. Þýfi, sem þeir höfðu tekið til handargagns, kom í leitirnar. Þar með er Reykjavíkurlögreglan búin að góma sjö innbrotsþjófa í vikunni, ýmist á vettvangi eða á flótta, og gera þýfi upptækt í öllum tilvikum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×