Innlent

Á batavegi eftir sjóslys

Sjómaðurinn, sem slasaðist um borð í Snorra Sturlusyni aðfaranótt sunnudags og var fluttur til Reykjavíkur með þyrlu varnarliðsins, er á batavegi. Hann útskrifaðist af gjörgæsludeild í morgun og er nú á almennri skurðdeild. Búast má við að hann verði útskrifaður af sjúkrahúsinu á næstu dögum. Maðurinn slasaðist þegar stór krókur slóst í hann eftir að stroffa á trolli gaf sig. Hann hlaut áverka á milta og í brjóstholi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×