Innlent

Erill hjá lögreglu

Töluverður erill var hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt og var mikil ölvun í miðbænum og heimahúsum. Sjö voru teknir grunaðir um ölvun við akstur. Á slysavarðstofu Landspítala - Háskólasjúkrahúss var einnig talsvert að gera en að sögn vakthafandi læknis var enginn fluttur þangað alvarlega slasaður. Tvær líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar í Keflavík í nótt og fóru lögreglumenn þrisvar sinnum að skemmtistað í bænum vegna slagsmála. Þá var sautján ára stúlka stöðvuð á bifreið sinni, grunuð um ölvun við akstur. Lögreglan á Selfossi aðstoðaði ökumenn í nótt í Hveradalabrekkunni en leiðindaveður var á þeim slóðum í nótt og mikið slabb á götum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×