Innlent

Bíll hafnaði í húsagarði

Árekstur varð á Hafnarfjarðarvegi laust eftir hádegi í gær með þeim afleiðingum að annar ökumannanna missti stjórn á bifreið sinni, sem þá rakst utan í nærliggjandi bíla áður en hún valt sjálf harkalega og hafnaði ofan í húsagarði við íbúðarhús á Ásbraut í Kópavogi. Ökumaðurinn, sem var einn í bifreiðinni, var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Eftir skoðun var hann yfirheyrður af lögreglunni. Ökumann hinnar bifreiðarinnar er lenti í árekstinum sakaði ekki. Bifreiðin sem valt skemmdist mikið í veltunni og er talin ónýt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×