Innlent

Bíll endaði inni í garði

Fólksbíll endaði inni í garði húseiganda í Kópavogi rétt upp úr hádegi eftir að hafa keyrt aftan á jeppabifreið á ofsahraða. Ökumaður fólksbílsins slasaðist og var fluttur á slysadeild en meiðsl hans voru talin minniháttar. Þrír voru í jeppanum og sluppu þeir ómeiddir. Atvikið átti sér stað við brúna í Hamraborg í Kópavogi og segir eigandi garðsins, Sigríður Magnúsdóttir sem hefur búið í húsinu síðustu 10 ár, að það hafi gerst nokkrum sinnum að bílar endi í garðinum hjá henni, síðast fyrir aðeins um mánuði síðan.  Íbúar í húsinu hafa krafist þess að girðing verði sett upp ofan við húsið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×