Lífið

Útlitskröfurnar orðnar meiri

Fyrsta uppþvottavélin var smíðuð rétt fyrir aldamótin af konunni sem stofnaði Kitchen Aid í Bandaríkjunum, en henni leiddist hvað þjónustufólk hennar braut mikið af leirtaui í uppvaskinu. Í grunninn eru uppþvottavélarnar eins uppbyggðar og sú fyrsta en eitt og annað hefur bæst við. "Vissulega hafa vélarnar breyst í gegnum árin þótt það sé ekki hægt að tala um neinar stökkbreytingar," segir Jón Norland hjá Smith & Norland sem hefur selt Simens uppþvottavélar í áraraðir. "Vélarnar verða sífellt hljóðlátari, nota minna vatn og eru sparneytnari. Svo er alltaf verið að þróa grindarbúnaðinn til að þjóna sem best því sem á að fara í vélina," segir Jón. Hann segir grindarbúnaðinn og annan búnað að sjálfsögðu vera fullkomnari eftir því sem vélarnar séu dýrari. "Í dag erum við með vélar sem skynja óhreinindi þannig að þær skynja hver þörfin er fyrir hvern þvott og haga þvottinum samkvæmt því," segir Jón. Hann segir að yfirleitt notist fólk bara við eitt kerfi en þurfi þó að hafa í huga að setja ekki viðkvæma hluti á mikinn hita. Aðrar breytingar sem Jón minnist á eru útlitsbreytingar á vélunum. "Fólk er farið að gera miklar útlitskröfur og spáir mikið hvernig vélarnar passa inn í eldhúsið," segir Jón. Fyrir vikið eru uppþvottavélar hannaðar með margvíslegu útliti og er stálið mjög vinsælt núna. "Við höfum selt Siemens uppþvottavélarnar í áraraðir og selt gríðarlega mikið af þeim. Vélarnar eru mjög endingargóðar en við erum samt að fá fólk sem er að endurnýja vélina, ekki vegna slits, heldur vegna þess að fólk er að uppfæra eldhúsið," segir Jón.
Jón Norland segir uppþvottavélarnar sífellt verða hljóðlátari, þæt nota minna vatn en áður og eru sparneytnari.Mynd/E.Ól





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.