Innlent

Kynferðisbrotamál á Patreksfirði

Lögreglan á Patreksfirði hefur nú til rannsóknar enn eitt kynferðisbrotamálið sem kært var skömmu fyrir páska. Grunur leikur á að maður á þrítugsaldri hafi beitt stúlku á unglingsaldri kynferðisofbeldi. Að sögn Þórólfs Halldórssonar, sýslumanns á Patreksfirði, hefur maðurinn ekki áður komið við sögu lögreglu vegna kynferðisbrota. Hann segir segir að málið sé í rannsókn en skýrslutöku sé lokið í Barnahúsi og svo verði unnið úr því næstu daga. Málið verði svo sent ríkissaksóknara sem ákveði hvert framhald þess verði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×