Viðskipti innlent

Öll nema þrjú hækkuðu í verði

Hlutabréf allra fyrirtækja utan þriggja í Kauphöll Íslands hækkuðu í verði á fyrsta fjórðungi ársins. Mest hækkuðu hlutabréf í FL Group, sem áður hét Flugleiðir, Bakkavör og Þormóði ramma - Sæberg en öll þessi félög hafa hækkað yfir 30 prósent á fyrstu þremur mánuðum ársins. Aðeins þrjú félög lækkuðu í verði á tímabilinu: Jarðboranir, Flaga Group og SÍF. Frá þessu er greint í hálffimm fréttum KB banka.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×