Viðskipti innlent

SÍF selur 55% í Iceland Seafood

SÍF hefur selt 55% hlut í dótturfélagi sínu, Iceland Seafood International, sem stofnað var um hefðbundið sölu- og markaðsstarf félagsins með sjávarafurðir. Kaupandi hlutarins er fjárfestingafélagið Feldir ehf. Salan á Iceland Seafood og Tros er liður í stefnumörkun SÍF þess efnis að skilja að fullvinnslu félagsins annars vegar, og hefðbundið markaðs- og sölustarf með sjávarafurðir hins vegar, og skerpa þar með áherslur í starfseminni, að því fram kemur á vef Kauphallarinnar.  SÍF hefur jafnframt selt allan eignarhlut sinn í Tros í Sandgerði sem er sérhæft í útflutningi á ferskum sjávarafurðum. Tros ehf. verður dótturfélag Iceland Seafood International. Salan hefur óveruleg áhrif á rekstrarniðurstöðu SÍF hf. Fyrirvari er gerður um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar. Við söluna á hlutnum í Iceland Seafood verður félagið hlutdeildarfélag SÍF hf. og hverfur úr samstæðureikningsskilum félagsins. Samhliða lækka vaxtaberandi skuldir samstæðunnar um 63 milljónir evra sé miðað við síðustu áramót en heildareignir Iceland Seafood International voru þá ríflega 105 milljónir evra. Áætluð áhrif á EBITDA SÍF  vegna sölu Iceland Seafood og Tros er tæplega 5 milljónir evra á ári. Forstjóri Iceland Seafood International verður Kristján Þ. Davíðsson, áður forstjóri Granda hf. og aðstoðarforstjóri HB Granda ehf. Benedikt Sveinsson, áður forstjóri Iceland Seafood Corporation í Bandaríkjunum, verður stjórnarformaður félagsins. Samhliða kaupunum á Iceland Seafoood International hafa tekist samningar milli nýrra eigenda og eigenda fiskútflutningsfyrirtækisins B. Benediktsson ehf. um sameiningu félaganna undir nafni Iceland Seafood International ehf. Mun Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri B. Benediktsson ehf. og annar aðaleigandi, leiða saltfisksölu hins sameinaða fyrirtækis. Að loknum fyrirhuguðum eignarhaldsbreytingum er gert ráð fyrir að eignarhald Iceland Seafood International verði í stórum dráttum með þeim hætti að Feldir eigi 55%, SÍF hf. 25% og starfsmenn 20%. Eftir þessar breytingar verður Iceland Seafood International með veltu upp á tæpar 400 milljónir evra og um 250 starfsmenn.    





Fleiri fréttir

Sjá meira


×