Innlent

Þyrla sótti flogsjúkling

Þyrla Landhelgisgæslunnar kom með slasaðan mann frá Rifi síðdegis í gær á Reykjavíkurflugvöll. Þaðan flutti sjúkrabíll manninn svo áfram á Landspítala - háskólasjúkrahús. Að sögn lögreglu á Ólafsvík fékk maðurinn flogakast við söluskálann á Rifi og datt þá og hlaut áverka á höfði. Læknir á Ólafsvík sprautaði manninn við flogakastinu en kastið hélt áfram. Því þótti ráðlegast að senda hann til rannsóknar á sjúkrahús í Reykjavík.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×