Lífið

Fáðu hjálp í sjónvarpinu

Queer Eye For The Straight Guy er þáttur á SKJÁEINUM um fimm samkynhneigðar tískulöggur sem taka að sér meðaljóna og breyta þeim og húsakynnum þeirra í glæsivillur. Tískulöggurnar gefa góð ráð um innanhúshönnun og hvernig er hægt að breyta hlutum á ódýran og góðan hátt. Þeir búa yfir rosalega góðum og fjölbreyttum hugmyndum og ættu margir að finna eitthvað við sitt hæfi. The Block á Stöð 2 er raunveruleikaþáttur þar sem fjögur pör bretta upp ermarnar og taka að sér að innrétta jafn margar íbúðir. Pörin fá vissa upphæð af peningum til að innrétta og oft finna þau upp á snilldarlegum og ódýrum lausnum fyrir íbúðirnar. Þau þurfa líka að hanna útlit á garðinn og sameignina þannig að þessi þáttur getur svo sannarlega nýst þeim sem eru að flytja í nýtt húsnæði eða vilja taka það gamla algjörlega í gegn. Á SKJÁEINUM er einnig þáttur Völu Matt, Innlit/útlit, en flestir ættu að vera farnir að kannast við þá þætti enda búnir að ganga í sex ár. Vala fær til liðs við sig smiði og hönnuði, sýnir áhorfendum fallegar og skemmtilegar íbúðir og kynnir sniðugar lausnir fyrir heimilið. Mjög gagnlegt fyrir þá sem eru í breytingahugleiðingum og vilja gleðja augað. Þriðji þátturinn á SKJÁEINUM er Allt í drasli þar sem Heiðar "snyrtir" Jónsson og Margrét Sigfúsdóttir ryðjast inn á heimili fólks og þrífa hjá þeim. Þetta skrýtna par gefur áhorfendum leiðbeiningar um hvernig á að þrífa ýmsa viðkvæma muni og hvaða hreingerningarlög á að nota á erfiða bletti. Svo ekki sé minnst á fasteignasjónvarpið Þak yfir höfuðið á SKJÁEINUM sem útskýrir fasteignamarkaðinn, Eldsnöggt með Jóa Fel á Stöð 2 sem útbýr matinn og Regnhlífarnar í New York í Sjónvarpinu sem kynna skemmtilegar bækur sem hægt er að lesa eftir allt stússið.
The Block á Stöð 2.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.