Innlent

Reyndu að stela skjávörpum

Lögreglunni á Selfossi barst tilkynning um að eitthvað vafasamt gæti verið á seyði í byggingu Fjölbrautaskóla Suðurlands í bænum laust eftir miðnætti síðastliðna nótt. Þegar lögregla kom á staðinn voru þar tveir piltar, 16 og 17 ára gamlir, að bjástra við að taka niður skjávarpa í eigu skólans en slíkir gripir eru metnir á hundruð þúsunda. Ungu mennirnir voru færðir niður á lögreglustöð þar sem þeir viðurkennndu glæpinn við yfirheyrslu og því sleppt að henni lokinni. Þeir skýrðu athæfið með því að þeir skulduðu pening. Málið telst upplýst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×