Innlent

Nóttin róleg víðast hvar

Nóttin var róleg á flestum stöðum á landinu út frá sjónarhóli lögreglunnar. Í Reykjavík var að sögn varðstjóra nánast ekkert að gera þrátt fyrir töluverðan mannfjölda í miðbænum en skemmtistaðir voru opnir til klukkan þrjú. Töluvert var um hávaðaútköll í heimahús hjá lögreglunni í Hafnarfirði í nótt og þar kom upp eitt fíkniefnamál þegar fannst lítilræði af hassi. Á Akureyri var nokkur erill hjá lögreglunni þótt engin stórvægileg mál hafi komið upp. Á Ísafirði var nánast ekkert að gera hjá lögreglunni þótt margt fólk hafi verið í miðbænum í nótt og fram eftir morgni, en í gær var tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður haldin á Ísafirði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×