Innlent

Glasi hent í andlit manns

Maður slasaðist á skemmtistað í Keflavík í nótt þegar glasi var hent í andlit hans með þeim afleiðingum að það brotnaði og hlaut hann sár í framan. Mikið blæddi úr sárinu og var maðurinn fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem gert var að sárinu. Maðurinn neitaði að gefa upp hver henti glasinu í hann. Rétt eftir klukkan fimm í nótt handtók lögreglan í Keflavík þrjá pilta sem voru að rífa rafmagnsleiðslur úr ljósastaur sem stendur við Hafnargötuna í Keflavík. Ræsa þurfti út rafvirkja til að aftengja rafmagnið í staurnum og mega piltarnir teljast heppnir að hafa ekki slasað sig við þessa undarlegu iðju.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×