Innlent

Harður árekstur við Kringluna

Harður árekstur varð á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar um hálftvöleytið í dag. Ökumaður fólksbifreiðar var á leið norður Kringlumýrarbraut og hugðist beygja vestur Miklubrautina. Hann ók þá í veg fyrir mótorhjól sem var á leið suður eftir Kringlumýrarbrautinni og kastaðist ökumaður þess yfir bílinn og lenti á bakinu á götunni. Ökumaður mótorhjólsins var fluttur á slysadeild en ökumann bílsins sakaði ekki. Að sögn vakthafandi læknis á slysadeild er líðan ökumanns mótorhjólsins eftir atvikum en hann er ekki lífshættulega slasaður.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×