Innlent

Rúta lenti úti í skurði

Hópbifreið með tólf manns innanborðs fór út af þjóðveginum í gær, um 15 kílómetra vestur af Vík í Mýrdal, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Vík í Mýrdal. Bifreiðin lenti út í skurði og lagðist á hliðina þegar hvellsprakk á öðru framhjólinu og ökumaður missti stjórn á bílnum. Ökumaður bílsins var íslenskur en farþegarnir svissneskir. Sjúkrabíll kom á staðinn en sjö farþeganna voru með minniháttar meiðsl. Þá fauk fólksbifreið út af veginum í Eldhrauni við Kirkjubæjarklaustur, en að sögn lögreglu var nokkuð um sviptivinda í gær. Ökumann sakaði ekki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×