Viðskipti innlent

Sáttur við skilyrði samkeppnisráðs

Samkeppnisráð hefur sett ítarleg skilyrði fyrir samruna Landssímans og Skjás eins, og samruna Og Vodafone og 365 ljósvakamiðla, sem meðal annars reka Stöð 2 og Sýn. Stjórnarformaður fjarskiptafyrirtækisins Hive segist sáttur við skilyrði samkeppnisráðs. Skilyrðin fela meðal annars í sér að 365 ljósvakamiðlar og Skjár einn skuli verða við beiðnum fjarskiptafyrirtækja um að dreifa sjónvarps- og útvarpsmerkjum þeirra sé um það beðið á málefnalegan hátt. Þá er sett skilyrði um að nýjar sjónvarpsstöðvar hafi tækifæri á að dreifa sínu efni á kerfum Símans og Og Vodafone. Sömu menn geta ekki setið í stjórnum bæði fjarkiptafyrirtækjanna og sjónvarpsfyrirtækjanna. Samkeppnisráð segir að við samruna fyrirtækjanna hafi orðið til tvær fyrirtækjablokkir á fjarskipta- og sjónvarpsmarkaði og að öllu óbreyttu myndu önnur fyrirtæki ekki komast að mörkuðunum þar sem blokkirnar tvær væru allsráðandi. Sigurður G. Guðjónsson, stjórnarformaður fjarskiptafyrirtækisins Hive, er ánægður með ákvörðun samkeppnisráðs. Hann segir að hún sýni að baráttan gegn fjölmiðlalögunum hafi verið rétt því bent hafi verið á að samkeppnisyfirvöld og önnur stjórnvöld gætu alveg sett þær reglur sem þyrfti á fjölmiðlamarkaði og honum sýnist sem að með úrskurðinum séu 365 ljósvakamiðlum settar þær reglur sem gilda eigi innbyrðis í fyrirtækjasamstæðunni og gagnvart fyrirtækjum eins og Hive. Aðspurður hvort setja hefði átt fleiri skilyrði segir Sigurður að hann sjái það ekki í fljótu bragði. Hann sé ekki búinn að skoða skilyrðin ofan í kjölinn en að honum sýnist þetta duga. Sigurður segir aðspurður að úrskurður samkeppnisráðs hafi þá þýðingu fyrir Hive að fyrirtækið geti samið við Landssímann um að fá að dreifa Skjá einum um kerfi sitt eins og fyrirtækið fái að dreifa Popp Tíví, en Hive hafi haft samning við 365 ljósvakamiðla þar að lútandi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×