Innlent

Smárúta valt á Sólheimasandi

Sjö svissneskir ferðamenn slösuðust, en allir lítils háttar, þegar smárúta valt á hliðina og hafnaði í skurði á Sólheimasandi í dag. Að sögn lögreglunnar í Vík í Mýrdal voru alls tólf manns í rútunni en bílstjórinn ásamt fjórum ferðamönnum sluppu án meiðsla. Rútan, sem er af gerðinni Ford Econline, var á þjóðvegi númer eitt, hringveginum, þegar skyndilega hvellsprakk á öðru framhjólinu. Læknir sem kom á vettvang gerði að sárum hinna slösuðu á nærliggjandi sveitabæ.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×