Innlent

Dómur mildaður fyrir kynferðisbrot

Hæstiréttur mildaði í gær um fjóra mánuði dóm Héraðsdóms Suðurlands frá júlí síðastliðnum yfir kynferðisbrotamanni sem dæmdur hafði verið til þriggja ára fangelsis. Var það mat Hæstaréttar að ákæruvaldið hefði ekki fært nægar sönnur á öll ákæruatriði málsins fyrir héraði og því bæri að milda dóminn um fjóra mánuði. Var maðurinn að öðru leyti sakfelldur fyrir þrjú kynferðisbrot gagnvart dóttur sinni á árinum 1995 til 1997 og var enn fremur dæmdur til greiðslu miskabóta.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×