Innlent

Héraðsdómur óhaggaður

Dómur Héraðsdóms Reykjaness yfir manni sem sakfelldur var fyrir kynferðisbrot gegn tveimur ungum stúlkum skal standa óhaggaður samkvæmt dómi Hæstaréttar. Maðurinn var dæmdur til átján mánaða fangelsis auk greiðslu skaðabóta til handa báðum stúlkunum. Krafa mannsins um að milda refsingu héraðsdóms og lækka skaðabætur var að engu virt og var honum gert að greiða annarri stúlkunni 800 þúsund krónur auk vaxta og hinni hálfa milljón króna auk vaxta. Var honum enn fremur gert að greiða allan sakarkostnað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×