Innlent

Sex mánaða fangelsisdómur

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær mann til sex mánaða fangelsisvistar, tímabundna sviptingu ökuleyfis og greiðslu skaðabóta vegna margvíslegra brota. Voru ákærur á hendur manninum einar sextán talsins en hann á að baki umtalsverðan brotaferil og hefur fimm sinnum áður verið dæmdur til fangelsisvistar. Meðal þess sem maðurinn játaði og var dæmdur fyrir voru margvísleg fíkniefnamál, skjalafals og fjársvik, nokkur innbrot auk nytjastulds og aksturs undir áhrifum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×