Innlent

Fólkið fundið heilt á húfi

Seinni bílinn sem leitað hefur verið að í dag er fundinn. Þyrla Landhelgisgæslunnar fann hann um klukkan 19.35 við Mikluöldu. Um borð voru allir þrír sem saknað var og voru allir heilir á húfi. Að sögn talsmanns Landsbjargar mun þyrlan flytja fólkið til byggða. Rétt fyrir klukkan sjö fann björgunarþyrla fyrri jeppann vestan við Kerlingarfjöll. Leit hafði staðið yfir í allan dag að þremur ungmennum sem fór á tveimur bílum suður Kjöl og var um níutíu manna björgunarlið þegar mest var.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×