Innlent

Vörubíll valt við Blönduós

Vörubíll með tengivagn á leið norður í land fór á hliðina við Sveinsstaði vestan við Blönduós í gærkvöld. Að sögn lögreglu virðist sem bóman á byggingakrana tengivagnsins hafi losnað og slegist við jörðina. Þar með dróst bíllinn á hliðina og valt síðan ásamt tengivagninum. Bílstjórinn var fluttur beinbrotinn og skorinn með sjúkrabíl til Akureyrar. Bíllinn er mikið skemmdur og segir lögregla að veginum verði lokað í dag þegar hann tengivagninn verði fjarlægður.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×