Innlent

Hákon Eydal hyggst áfrýja dómi

Hákon Eydal, banamaður Sri Rahmawati, var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í 16 ára fangelsi. Eins var honum gert að greiða þremur börnum Sri nærri 22 milljónir króna í bætur. Hákon lýsti því yfir við dómsuppkvaðningu að hann ætlaði að áfrýja dómnum til Hæstaréttar.  Hákon varð Sri að bana á heimili sínu í Stórholti í byrjun júlí í fyrra en hún var fyrrverandi sambýliskona hans og barnsmóðir. Sri lést sökum kyrkingar en hafði einnig alvarlega höfuðáverka og hefur Hákon játað að vera valdur að hvoru tveggja.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×