Viðskipti innlent

Ólafur og Pétur stofna Veröld

Ólafur Ragnarsson og Pétur Már Ólafsson, fyrrverandi útgefendur hjá Vöku-Helgafelli, hafa stofnað nýtt bókaforlag og ætla að setja fyrstu bækurnar á markað í haust. Forlagið heitir Veröld og segir í tilkynningu frá því að það sé þegar búið að tryggja sér útgáfurétt á ýmsum bókum sem vakið hafa athygli erlendis og einnig gengið frá samningum um íslenskar bækur. Þá ætlar Veröld líka að sækja inn á erlenda markaði með verk þeirra íslensku höfunda sem verða á útgáfulista félagsins.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×