Innlent

Refsing þyngd í Hæstarétti

Hæstiréttur þyngdi í gær refsingu síbrotamanns sem dæmdur hafði verið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í tveggja ára fangelsi í október síðastliðnum fyrir margvísleg brot. Var það mat dómsins að vegna fyrri sakaferils væri rétt að bæta sex mánuðum við dóm héraðsdóms. Maðurinn var sakfelldur í héraði fyrir rán, akstur án ökuréttar, ölvunarakstur og að hafa fíkniefni í fórum sínum. Hæstiréttur tók tillit til að um þriðja rán mannsins var að ræða og fannst hæfilegt að dæma viðkomandi í fangelsi í tvö ár og sex mánuði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×