Erlent

Brösug stjórnarmyndun í Írak

Það gengur brösuglega að koma á starfhæfri stjórn í Írak. Trúarhópar og þjóðernisbrot deila sín á milli og á sama tíma fækkar í fjölþjóðahernum þegar bandamenn heltast úr lestinni.  Í dag lauk þinghaldi á írakska þinginu þar sem ganga átti frá myndun ríkisstjórnar. Það tókst hins vegar ekki. Kúrdar og sjítar hafa skipt embættum forseta og forsætisráðherra á milli sín en deilt er um allt annað: embætti, yfirráð á ákveðnum svæðum og framtíð ýmissra vopnaðra sveita. Fulltrúar ólíkra hópa vonast þó til þess að geta náð samkomulagi hið fyrsta. Á sama tíma kvarnast úr fjölþjóðahernum í Írak. Sveitir Hollendinga og Úkraínumanna fara í þessari viku og í gærkvöldi tilkynnti Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, í sjónvarpsþætti óvænt um brotthvarf ríflega þrjú þúsund ítalskra hermanna, sama dag og ítalska þingið samþykkti að fjármagna áframhaldandi úthald hermanna þar. Berlusconi kvaðst ekki getað staðist almennan þrýsting og óánægju með stríðið, en kosið verður til þings á Ítalíu í vor. Þingmenn stjórnarandstöðunnar þar voru ekki alls kostar sáttir við framsetningu forsætisráðherrans. Einn þeirra, Giovanna Melandri, sagði þetta algjörlega óviðunandi því sama dag hafi verið umræða í þinginu um endurfjármögnun sveitanna. Almenningur á Ítalíu er þó væntanlega sáttur, enda hefur þess verið krafist í fjölmennum mótmælagöngum undanfarinn hálfan mánuð að Ítalía hætti öllum afskiptum af Írak. Óánægjan jókst mjög í kjölfar þess að ítalskur leyniþjónustumaður var skotinn til bana. Bandarískir hermenn skutu hann skömmu eftir að hann náði að frelsa umdeilda, ítalska blaðakonu og kringumstæðurnar eru á reiki. Talsmenn Hvíta hússins eru þó ekki á því að neitt samhengi sé þarna á milli og þverneita því í sífellu. Það lendir svo líkast til á breskum sveitum að fylla í skarðið sem myndast við brotthvarf Ítala í september, sem og Hollendinga og Úkraínumanna í þessari viku.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×