Viðskipti innlent

Skuldabréf fyrir 28 milljarða

Alþjóðasvið Landsbankans hefur gengið frá útgáfu víkjandi skuldabréfa að fjárhæð 28 milljarðar króna, eða sem jafngildir 350 milljónum evra. Útgáfan skiptist í tvo flokka, 12 milljarðar króna (150 milljónir evra) undir eiginfjárþætti A, og 16 milljarða króna (200 milljónir evra) undir eiginfjárþætti B, og var beint að alþjóðlegum fagfjárfestum. Umsjón með þessari útgáfu höfðu bandaríski bankinn, Banc of America Securities Limited, svissneski fjárfestingarbankinn Credit Suisse First Boston Limited og franski bankinn Société Générale, auk franska bankans Natexis Banques Populaires. Útgáfan er gerð innan EMTN-fjármögnunarramma Landsbankans (Euro Medium Term Notes) og er hún liður í því að fjármagna mikinn vöxt bankans. EMTN fjármögnunarramminn gerir Landsbankanum kleift að gefa út skuldabréf í ýmsum myntum með mismunandi lánstíma með skömmum fyrirvara. Jafnframt styrkir útgáfan eiginfjárhlutfall Landsbankans til muna og er bankinn vel í stakk búinn til frekari vaxtar. Heildareftirspurn eftir víkjandi skuldabréfum Landsbankans nam 63 milljörðum króna, eða ríflega tvöfaldri þeirri upphæð sem tekin var að láni.  Þessi mikli áhugi á víkjandi skuldabréfum Landsbankans undirstrikar enn og aftur mikla trú á starfsemi bankans meðal erlendra fjárfesta og eru lánskjör bankanum hagstæð. Alls tóku yfir 60 fagfjárfestar þátt í útgáfunni, einkum sjóðir eignarstýringarfyrirtækja, auk banka og fjöldi annarra fjárfesta. Fjárfestarnir komu frá Frakklandi, Spáni, Bretlandi og öðrum Evrópulöndum.        





Fleiri fréttir

Sjá meira


×