Innlent

Beðið eftir krufningarskýrslum

Málsgögn vegna manndrápsmálanna í Keflavík og Mosfellsbæ frá síðasta ári hafa ekki enn verið send ríkissaksóknara. Beðið er eftir krufningarskýrslu í báðum málunum en búist er við að málsgögn verði send ríkissaksóknara í næsta mánuði. Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir ekki óalgengt að rannsókn slíkra mála taki þrjá til fjóra mánuði. Mennirnir létust báðir eftir átök á skemmtistöðum, annar þeirra lést í Keflavík í nóvember og hinn í Mosfellsbæ í desember.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×