Innlent

Stolnum skóm dreift við leikskóla

Skór lágu á víð og dreif við leikskólann Stakkaborg í Reykjavík í morgun. Höfðu óprúttnir menn brotist inn í bíl, stolið þaðan skóm og dreift þeim á lóðina. Þegar starfsfólk mætti á leikskólanum Stakkaborg í Bólstaðarhlíð í morgun blasti við óvenjuleg sjón, en nýjum skóm hafði verið dreift um lóðina og fyrir dyr leikskólans. Starfsmaður segir engu líkara en að skóm hafi rignt við leikskólann í nótt. Brotist var inn í bíl sem hafði staðið lengi við götuna og skórnir teknir úr stórum poka í honum. Hann er númerslaus og biður lögregla eigandann að gefa sig fram svo hann geti endurheimt skótau sitt. Ágúst Svansson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni í Reykjavík, segir líklegt að krakkar hafi verið að verki. Hann velti fyrir sér hvort hugsanlega sé um listaverk eða skúlptúr að ræða. Listin tekur jú á sig ýmsar myndir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×