Innlent

Árs fangelsi fyrir mörg innbrot

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag mann á fertugsaldri í eins árs fangelsi fyrir að stela lyfjum, matvöru, bókum og armbandsúrum í fjölmörgum innbrotum og fyrir að stinga af frá ógreiddum reikningi í leigubíl. Maðurinn hefur frá árinu 1995 gengist undir tvær sáttir vegna fíkniefnabrota og hlotið tíu dóma vegna fíkniefna- og hegningarlagabrota, aðallega þjófnaðarbrota. Maðurinn rauf skilorð með þjófnuðunum og því er dómurinn svo þungur. Hann þarf einnig að greiða sakarkostnað og bætur til ýmissa aðila fyrir þjófnaðina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×