Innlent

Lagt mót akstursstefnu

Mikill fjöldi ökumanna leggur bílum sínum mót akstursstefnu á götum borgarinnar en slíkt er óheimilt samkvæmt lögum. Lögreglan sagði þetta hafa verið áberandi í miðbæ Reykjavíkur um helgina og var sem dæmi rúmlega 30 bílum lagt mót akstursstefnu á Skólavörðustígnum einum um miðjan dag á laugardaginn var. Þykir lögreglunni þetta ekki til eftirbreytni en mál af þessu tagi eru þó ekki í forgangi hjá umferðardeild.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×