Innlent

Drukkin með barn í bílnum

Lögreglumenn á Selfossi prísa sig sæla að hafa stöðvar för konu á ferð um bæinn í gær eftir að í ljós kom að hún var bæði drukkin og undir áhrifum lyfja undir stýri með barn í bílnum. Var konan færð á lögreglustöðina og töldu lögreglumenn það mikið happ að hafa náð henni áður en hún olli slysi eða tjóni með ökulagi sínu. Lögreglumenn á Selfossi höfðu ennfremur í nógu að snúast við hraðamælingar og voru alls þrettán ökumenn teknir og sektaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi hennar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×