Innlent

15 ára piltar í gæsluvarðhaldi

Tveir fimmtán ára piltar sitja í gæsluvarðhaldi grunaðir um á annan tug innbrota á Seltjarnarnesi og í Vesturbæ Reykjavíkur. Annar piltanna hefur áður setið í gæsluvarðhaldi. Farið var fram á gæsluvarðhald yfir piltunum í gær vegna rannsóknarhagsmuna en varðhaldið rennur út á mánudag. Í innbrotunum var stolið fjölda fartölva, DVD-spilurum og fleiri heimilistækjum. Fleiri eru hugsanlega grunaðir um að eiga þátt í innbrotunum. Sá sem áður hefur setið í gæsluvarðhaldi hlaut skilorðsbundinn dóm í kjölfar varðhaldins en þá var farið fram á að pilturinn sætti síbrotagæslu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×