Innlent

Glæfralegur hraðakstur á Selfossi

Átján ára ökumaður var stöðvaður í nótt eftir glæfralegan hraðakstur á Selfossi. Pilturinn, sem var á Toyota Land Cruiser jeppa, mældist á 137 kílómetra hraða innanbæjar á Selfossi þar sem leyfilegur hámarkshraði er 50 kílómetrar. Hann ók síðan yfir hringtorg og út úr bænum í átt til Reykjavíkur og fór hann upp í 150 kílómetra hraða þar sem hámarkshraðinn er 90 kílómetrar. Lögreglu tókst að stöðva ökumanninn skömmu síðar. Engin slys hlutust af ofsaakstrinum og ökumaður var allsgáður, en viðbúið er að honum verði bannað að setjast undir stýri um ókomna tíð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×